• Heimsóknir

    • 126.823 hits
  • desember 2025
    S M F V F F S
     123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031  
  • Nýlegar færslur

  • Færslusafn

Um mig

Ég hef gaman af því að skrifa um eitt og annað, sérstaklega um umhverfismál og hlaup. Rek eigin fyrirtæki sem fæst við umhverfisráðgjöf, en er líka fjölskyldufaðir og maraþonhlaupari, svo eitthvað sé nefnt.

Til að útskýra þetta nánar, þá er ég fæddur og uppalinn í Gröf í Bitrufirði 1957, stundaði nám í farskóla í heimasveitinni og síðan á Reykjaskóla og í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Útskrifaðist þaðan 1976. Tók svo BS-próf í líffræði frá Háskóla Íslands 1980 og próf í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda skömmu síðar. Árin 1982-1985 var ég skólastjóri Grunnskólans á Broddanesi á Ströndum og síðan sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps 1985-1997. Þá lá leiðin í framhaldsnám til Svíþjóðar, þaðan sem ég útskrifaðist með meistaragráðu í stefnumótun og stjórnun umhverfismála frá Háskólanum í Lundi haustið 1998. Eftir heimkomuna starfaði ég sem verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi í 11 ár í umboði Sambands íslenskra sveitarfélaga og umhverfisráðuneytisins. Árið 2000 stofnaði ég fyrirtækið Umhverfisráðgjöf Íslands ehf., öðru nafni UMÍS ehf. Environice, sem sinnir ráðgjöf um umhverfismál og sjálfbæra þróun til stofnana og fyrirtækja. Síðustu árin hafa stærstu verkefnin snúist um gerð úrgangsáætlana, útreikning á kolefnisspori, mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, gerð fræðsluefnis um umhverfismál, námskeiðahald, fyrirlestra og kennslu um sjálfbæra þróun, gerð útvarpsefnis o.fl. Starfsmenn Environice hafa verið 1-5 eftir verkefnastöðu hverju sinni. Um þessar mundir er ég eini starfsmaðurinn – og hef yfrið nóg að gera.

Eftir 22ja ára búsetu í Borgarnesi fluttist ég að Hvanneyri haustið 2021 ásamt Björk Jóhannsdóttur, lífsförunauti mínum síðustu 46 ár. Á Hvanneyri er gott að vera! Saman eigum við þrjú börn, sem öll eru á fertugsaldri og löngu flogin úr hreiðrinu – og þegar þetta er skrifað eru barnabörnin þrjú.

Hlaup hafa verið helsta áhugamál mitt frá unga aldri, og sá áhugi hefur ágerst síðustu 15-20 ár. Ég hef hlaupið 20 maraþonhlaup um dagana og Laugaveginn sex sinnum eins og staðan er í andránni. Besta maraþontímanum mínum náði ég sumarið 2013, 3:08:19 klst. Uppáhaldsviðfangsefni mitt á þessu sviði eru þó fjallvegahlaup. Gaf sjálfum mér 50 fjallvegi í 5-tugsafmælisgjöf árið 2007, hljóp þá næstu 10 árin og skrifaði svo bók um allt saman, sem kom út á 6-tugsafmælinu mínu. Í framhaldi af því gaf ég mér 50 fjallvegi til viðbótar sem ég ætla að hlaupa fyrir sjötugt. Bók um þá fjallvegi er væntanleg 18. mars 2027.

Sjá einnig:
http://www.environice.is
http://www.fjallvegahlaup.is
http://www.facebook.com/stefangisla

(Síðast uppfært 22. júlí 2024)

Færðu inn athugasemd