
Ein af fjölmörgum góðum fjallvegahlaupamyndum Sævars Skaptasonar. Þessi var tekin á Reykjaheiði 7. ágúst 2014.
Ég átti fimmtugsafmæli fyrir skemmstu. Þá ákvað ég að hlaupa 50 fjallvegi á næstu tíu sumrum. Og allt í einu eru átta af þessum sumrum liðin og bara tvö eftir – og hlaupnu fjallvegirnir eru orðnir 40 talsins. Það þýðir að nú eru bara 10 slíkir eftir og ekki seinna vænna að velta því fyrir sér hvaða fjallvegir það eigi að vera. Þar eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Til að draga úr óvissunni birtast hér fyrstu drög að fjallvegahlaupadagskránni 2015-2016. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið!
1. Flatnavegur, laugardag 30. maí 2015 (#41)
Flatnavegur er um 14 km leið sem liggur frá Rauðamelsölkeldu í Eyja- og Miklaholtshreppi að Litla-Langadal á Skógarströnd. Þetta ætti að vera býsna viðráðanlegur spotti fyrir næstum hvern sem er. Leiðin fer varla í meira en 180 m hæð yfir sjó og er því alveg á mörkunum að standast inntökupróf í fjallvegahlaupaverkefnið. Þetta er frekar bara dalavegur, e.t.v. svolítið blautur á köflum. En fjölbreytnin er góð og gefur fleirum möguleika á að vera með. Nákvæmar tímasetningar hafa ekki verið ákveðnar, en seinni partur dagsins þykir einna álitlegastur í þessu sambandi. Á næstu vikum hefjast viðræður um uppsetningu á hugsanlegri grillaðstöðu Skógarstrandarmegin og ef þær ganga vel mætti hugsa sér að efnt verði til sameiginlegrar máltíðar að hlaupi loknu, þar sem hver um sig leggur til hráefni.
2. Þrístrendingur, laugardag 20. júní 2015
Næsta sumar verður Þrístrendingur hlaupinn í sjötta sinn. Sem fyrr verður lagt upp frá Kleifum í Gilsfirði kl. 10 eða 11 árdegis, hlaupið norður Steinadalsheiði í botn Kollafjarðar á Ströndum, þaðan yfir Bitruháls að æskuheimili mínu í Gröf og loks þaðan suður Krossárdal að Kleifum. Leiðin öll er rúmir 40 km, og á henni eru þrír fjallvegir. Þetta er samt ekki hluti af fjallvegahlaupaverkefninu mínu, því að þessar leiðir hef ég farið oft áður. En þessi hlaup eru alltaf skemmtileg! Ferðasögur frá liðnum sumrum eru geymdar í gagnaverum víða um heim. Dæmi um það er ferðasagan frá sumrinu 2014.
3. Hamingjuhlaupið, laugardag 27. júní 2015
Þennan dag verður kominn tími á 7. Hamingjuhlaupið, en það tilheyrir flokki skemmti- og félagshlaupa rétt eins og Þrístrendingur. Þarna er hlaupið eftir fyrirfram gerðri tímaáætlun sem svipar mjög til strætisvagnaáætlunar. Hamingjuleiðin 2015 liggur um Laxárdalsheiði frá Klukkufelli í Reykhólasveit, inn fyrir Þiðriksvallavatn og svo sem leið liggur til Hólmavíkur. Vegalengdin er sjálfsagt rúmlega 30 km og þeir sem ekki treysta sér alla leiðina geta slegist í hópinn hvar sem er eftir að komið er niður í Þiðriksvalladal. Þetta verður allt kynnt miklu betur þegar nær dregur, en þangað til er hægt að stytta sér stundir við lestur eldri frásagna af Hamingjuhlaupum, t.d. frá sumrinu 2014.
4. Strjúgsskarð, laugardag 11. júlí 2015 (#42)
Ég hef horft svo oft upp í Strjúgsskarð á leiðinni til Akureyrar að nú hlýtur að vera kominn tími til að hlaupa það. Þá er lagt af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal, svo sem 17 km innan við Blönduós, hlaupið upp í skarðið og niður í Laxárdal, yfir hann, yfir Litla-Vatnsskarð og loks út Víðidal og Hryggjardal alla leið til Sauðárkróks. Þetta er því í raun meira en einn fjallvegur þó að ég hafi ákveðið að taka þetta sem eitt verkefni. Vegalengdin er eitthvað um 31 km.
5. Laugavegurinn, laugardag 18. júlí 2015
Laugavegurinn er ekki hluti af fjallvegahlaupaverkefninu, en mér finnst bara svo gaman að hlaupa hann að ég get ekki sleppt því. Set hann því hér með til minnis. Hvet aðra til að hlaupa hann líka, en þá þarf maður náttúrulega að skrá sig fljótlega eftir að opnað verður fyrir slíkt í janúarmánuði.
6. Barðsneshlaupið, laugardag 1. ágúst 2015
Barðsneshlaupið fyrir austan er ekki hluti af fjallvegahlaupaverkefninu, ekki frekar en Laugavegurinn. Mig hefur bara lengi langað til að hlaupa það og ætla að láta verða af því næsta sumar.
7. Víkurheiði og Dys, þriðjudag 4. ágúst 2015 (#43)
Víkurheiði liggur frá Stóru-Breiðuvík í Reyðarfirði út í Vöðlavík. Ég ætla hins vegar að beygja til norðurs á miðri leið og hlaupa um svonefnda Dys niður í Viðfjörð. Þar býst ég við að sagðar verði sögur af nýunnum afrekum í Barðsneshlaupinu og af Viðfjarðarundrunum, sem voru líklega minna skemmtileg. Leiðin öll er um 14 km og líklega hægt að komast á bíl til baka til byggða.
8. Berufjarðarskarð, fimmtudag 6. ágúst 2015 (#44)
Leiðin um Berufjarðarskarð liggur frá Höskuldsstöðum í Breiðdal í botn Berufjarðar. Vegalengdin er um 14 km, en ágætlega brött, fer mest í um 860 m hæð yfir sjó.
9. Haukadalsskarð, laugardag 15. ágúst 2015 (#45)
Haukadalsskarð liggur úr Haukadal í Dölum yfir að Brú í Hrútafirði. Þetta er aðgengilegur fjallvegur, enda jeppafær. Vegalengdin er eitthvað um 20 km. Heyrst hefur að seldir verði hamborgarar í Staðarskála að hlaupi loknu.
10. Þrístrendingur, laugardag 18. júní 2016
Sumarið 2016 verður Þrístrendingur hlaupinn í sjöunda sinn. Fjölyrði ekki frekar um það en vísa í það sem fram kemur framar í þessum pistli.
11. Hamingjuhlaupið, laugardag 25. júní 2016
Þennan dag verður kominn tími á 8. Hamingjuhlaupið, (sjá framar). Ekki er enn ljóst hvaða leið verður hlaupin í þetta skiptið.
12. Klofningsheiði, fimmtudag 14. júlí 2016 (#46, #47 eða #48)
Leiðin um Klofningsheiði liggur frá Flateyri og síðan niður Sunddal og Staðardal til Keravíkur, út fyrir Spilli og inn til Suðeyrar við Súgandafjörð. Leiðin upp er brött en hæst er farið í rúmlega 600 m hæð. Vegalengdin er áætluð um 14 km.
13. Vesturgatan, sunnudag 17. júlí 2016
Það vill svo skemmtilega til að Hlaupahátíðin á Vestfjörðum verður einmitt haldin dagana eftir Klofningsheiðarhlaupið. Hátíðin hefst á fimmtudag eða föstudag og nær hápunkti með Vesturgötunni á sunnudag. Þar ætla ég að vera, enda veit ég hvað maður fær góðar móttökur fyrir vestan. En Vesturgatan er svo sem ekki hluti af fjallvegahlaupaverkefninu.
14. Sléttuheiði, þriðjudag 19. júlí 2016 (#47, #48 eða #49)
Hlaupaleiðin sem um ræðir liggur frá Sæbóli í Aðalvík, inn Staðardal, upp Fannadal, yfir Sléttuheiði og inn Hesteyrarbrúnir að Hesteyri. Leiðin er greiðfarin en gróf og eitthvað um 14 km að lengd. Boðið hefur verið upp á bátsferðir frá Ísafirði að Sæbóli kl. 9 á þriðjudagsmorgnum yfir sumarmánuðina og til baka frá Hesteyri seinni partinn. Dagsetning hlaupsins yfir Sléttuheiði miðast við að svipaðar ferðir verði enn í boði sumarið 2016. Þeir sem ekki treysta sér til að hlaupa þennan spöl geta væntanlega komist í gönguferð með leiðsögn þessa sömu leið, sem miðast einmitt við þessar sömu bátsferðir. Það er með öðrum orðum frekar einfalt að gera meira en bara hlaupaferð úr þessu.
15. Arnarvatnsheiði, laugardag 13. ágúst 2016 (#50)
Arnarvatnsheiðin verður síðasti fjallvegurinn í fjallvegahlaupaverkefninu. Dagsetningin er nokkurn veginn ákveðin, en e.t.v. er þó freistandi að færa hana fram til að fá lengri birtutíma. Lagt verður upp úr Miðfirði, væntanlega í grennd við Aðalból, að morgni dags og endað í námunda við Kalmanstungu í Borgarfirði þegar tekið verður að kvölda. Þessi spölur er eitthvað um 70 km og þar með langlengsti fjallvegurinn í verkefninu. Að hlaupi loknu verður fjallvegahlaupaverkefnið kvatt með formlegum hætti, en hver sá háttur verður kemur mun betur í ljós þegar nær dregur.
Eins og ráða má af upptalningunni hér að framan er enn ekki búið að taka ákvörðun um staðsetningu og tímasetningu tveggja fjallvegahlaupa sumarið 2016. Þar er reyndar úr vöndu að ráða, því að nóg er til af óhlaupnum fjallvegum og verkefnið tekur aðeins við 50 slíkum. Þeir fjallvegir sem helst hafa verið orðaðir við þessi tvö lausu sæti eru Sandsheiði (15 km) frá Barðaströnd vestur á Rauðasand, Kiðaskarð (17 km) frá Mælifelli í Skagafirði að Stafnsrétt í Svartárdal, Þingmannavegur (12 km) yfir Vaðlaheiði og Fimmvörðuháls (22 km) frá Skógum að Goðalandi í Þórsmörk. Öll góð ráð um þetta eru vel þegin, svo og hæfilegur hópþrýstingur frá þeim sem telja einhverjar leiðir öðrum nauðsynlegri.
Rétt er að taka fram að allt er þetta birt með fyrirvara um breytingar en svona lítur þetta alla vega út í andránni.
Sem fyrr vonast ég til að sem flestir sláist í för með mér í þessum hlaupum. Félagsskapurinn hefur verið mér mikils virði, enda skapast einhvern veginn þéttari og endingarbetri kynni á fjöllum en í byggð þar sem undirstaðan er malbik, fundarborð og tölvuskjáir.

Á harðaspretti niður Hörgárdal eftir fjallvegahlaup yfir Hjaltadalsheiði 5. ágúst 2014. Þrír fremstu hlaupararnir á myndinni eru líka þau sem oftast hafa slegist í för með mér í fjallvegahlaupunum. Þar er hörð keppni í gangi!
Filed under: Hlaup | Tagged: fjallvegahlaup | 3 Comments »