Ég opnaði nýja vefsíðu á dögunum, vefsíðuna 2020.is. Þetta er vefsíða með stuttum, daglegum umhverfispunktum, sem ég hef lengi ætlað mér að koma upp, eiginlega alveg síðan „Íslenska Staðardagskrárverkefnið“ leið undir lok í árslok 2009. Hluti af því verkefni var sérstök síða með „Orðum dagsins“, þ.e.a.s. tilvitnunum og stuttum fréttum um umhverfismál. Árum saman hafði það verið ein helsta skemmtun mín í vinnunni að taka saman þessa punkta og klæða þá í búning sem ég taldi aðgengilegan fyrir lesendur. Þess vegna fannst mér svolítið leiðinlegt að hætta þessum skrifum. Fann bara ekki leiðina til að endurvekja þau – fyrr en nú.
Nú er eðlilegt að spurt sé hvort umfjöllun um umhverfismál hverfi þá af bloggsíðunni minni. Svarið er „nei“. Umfjöllunin á 2020.is er eingöngu í formi stuttra fróðleiksmola (5-15 línur), en eftir sem áður mun ég blogga í lengra máli um þau umhverfismál sem eru mér hugleiknust hverju sinni, þ.e. eftir því sem tími vinnst til. Báðar síðurnar flokkast undir tómstundagaman – og stundum myndast samkeppni á milli tómstundagamans og launaðrar vinnu. Þannig er lífið.
Reyndar hefur lítið farið fyrir umhverfismálum hérna á blogginu síðustu vikur, heldur hafa hlaupin verið nær allsráðandi. Þetta er alvanalegt á sumrin. Nú er hins vegar að koma haust og aldrei að vita nema ég setjist niður einhvern daginn og skrifi ógurlega langa bloggpistla um sjálfbæra hjöðnun, hanastélsáhrif eða skipulag hálendisins. Þeir sem nenna ekki að bíða eftir löngum pistlum sem birtast sjaldan ættu að byrja daginn með því að líta á nýjasta fróðleikinn á 2020.is. Þar verður eitthvert lífsmark flesta virka daga.
Filed under: Blogg um blogg, Sjálfbær þróun, Umhverfismál | Tagged: 2020.is |
Vinur minn greip orðasambandið þitt „sjálfbær hjöðnun“, og benti á 🙂
Þessi blaðagrein og athugasemdirnar eru kannski eitthvað í áttina ?
( Örstutt samantekt : Raunverulega sjálfbær þróun og hefðbundin efnahags_vöxt_ eru í mótsögn. )
http://www.guardian.co.uk/sustainable-business/talk-point-systemic-solutions-change
Takk. Já, þessi grein fjallar um kjarna málsins.