Í kvöld kemur í ljós hver verður „Ungfrú Noregur 2010“. Einhverjum kann að koma á óvart að ég geri þetta að umtalsefni á blogginu mínu, en umrædd keppni er óvenjuleg að því leyti, að þar er ekki bara lögð áhersla á ytri fegurð, heldur einnig þekkingu á umhverfismálum.
Tólf stúlkur komust í úrslitakeppnina í „Ungfrú Noregur 2010“. Mikilvægur hluti af undirbúningi þeirra hefur verið umhverfisfræðsla af ýmsu tagi, enda fær sigurvegarinn að taka þátt í keppninni „Miss Earth 2010“, sem fram fer í Víetnam, en þar verður mikil áhersla lögð á umhverfis- og loftslagsmál. Ungfrú Noregi 2010 er einnig ætlað það hlutverk að kynna nýjungar í umhverfisvænni norskri tækni.
Sigurvegarinn í „Miss Earth“ verður sérstakur talsmaður Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) árið sem hún ber titilinn.
Hægt er að lesa meira um keppnina „Ungfrú Noregur 2010“ í frétt á heimasíðu Grønn Hverdag í fyrradag. Þar fékk ég líka lánaða meðfylgjandi mynd af Lenu Okkerstrøm, sem er ein þeirra 12 stúlkna sem komust í úrslit og keppa um titilinn í kvöld.
Filed under: Umhverfismál |
Færðu inn athugasemd