Samtökin Grønn Hverdag í Noregi efndu á dögunum til samkeppni á Fésbókarsíðu sinni um bestu afgangauppskriftina. Sigurlaunin komu í hlut Lisbeth Hauge, sem sendi inn uppskrift sem nýtir afganga af soðnu grænmeti og kartöflum.
Uppskriftin frá Lisbeth Hauge er einföld: „Maður tekur bara afganga af soðnu grænmeti og kartöflum, skellir því í blandara með svolitlu af rjóma/mjólk/vatni, smjöri og kryddi. Úr þessu verður stórfín grænmetis/kartöflustappa sem nýtist sem meðlæti daginn eftir. Tekur enga stund“.
Grønn Hverdag birtir nýja afgangauppskrift á Fésbókarsíðu sinni á hverjum fimmtudegi. Það er því vel þess virði að láta sér líka við síðuna þeirra (sjá https://www.facebook.com/#!/gronnhverdag).
(Innihald þessa pistils og myndin sem fylgir eru fengin að láni af heimasíðu Grønn Hverdag í Noregi).
Filed under: Heilsa, Sjálfbær þróun, Umhverfismál | Tagged: afgangar, Grønn Hverdag, matur |
Færðu inn athugasemd