Um daginn skrifaði ég svolítið um vanmetin tækifæri til líkamsræktar. Nú ætla ég að halda áfram á sömu braut og nefna tvö lítil dæmi þar sem menn hafa keypt sig undan snúningum fyrir talsvert fé, gjarnan í nafni tímasparnaðar, án þess að huga að því hvort nokkur tími sparist í raun þegar upp er staðið og án þess að velta því fyrir sér hvort meintur tímasparnaður hafi kannski neikvæð áhrif á heilsuna.
Stórvirkar sláttuvélar
Ég bý í raðhúsi með u.þ.b. 100 fermetra grasflöt. Á svoleiðis grasflöt er óþarfi að beita stórvirkum vinnuvélum við slátt. Samt veit ég til þess að fólk með álíka stórar grasflatir hafi keypt sér þungar bensínknúnar garðsláttuvélar í heyskapinn fyrir tugi þúsunda. Sjálfur sníkti ég lítið notaða handsláttuvél fyrir 10 árum, sem hefur dugað mér ágætlega síðan, eingöngu knúin vöðvaafli. Með þessu móti hef ég sparað mér töluverð fjárútlát í tækjum, varahlutum og eldsneyti. Hins vegar hef ég líklega ekki fengið neitt meiri líkamsrækt út úr slættinum en bensínsvélafólkið, því að vélarnar þeirra eru jú þyngri og umsýslan öll snúningasamari.
Bændur á torfæruhjólum
Fjórhjól og sexhjól eru til margra hluta nytsamleg í sveitinni. En mig rekur alveg í rogastans þegar ég sé unga og ófatlaða bændur mjakast um á þessum hjólum í þeim tilgangi einum að spara sér sporin stuttar leiðir. Ég veit jafnvel dæmi þess að farið sé á svona hjólum milli húss og bæjar til gegninga, þó að vegalengdin sé ekki meiri en svo sem 100 eða 200 metrar! Og ég hef líka séð kúasmala á svona hjólum í hægagangi á eftir kúnum, sem eru þó yfirleitt ekkert að flýta sér á röltinu.
Lokaorð
- Ef maður á tvo valkosti, þar sem annar er betri fyrir fjárhaginn, heilsuna og umhverfið en hinn, hvorn velur maður þá?
- “Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag, hefurðu ekki heilsu fyrir tímann á morgun”.
Filed under: Heilsa, Sjálfbær þróun |
Verður maður ekki að líta á þessi vélknúnu tæki sem leikföng. Leikföng sem fólk réttlætir að hafa keypt með því að þetta sé vinnuhagræði… þótt það sé það ekki þegar upp er staðið.
Jú, ég held að það sé einmitt rétt hjá þér. Og ég held líka að þetta séu frekar karllæg leikföng. Það er lengi hægt að réttlæta kaup á dýrum græjum!